Episodes

Monday Feb 03, 2020
41 - Hemmi Helgar sig bardagaíþróttum
Monday Feb 03, 2020
Monday Feb 03, 2020
Þegar Helgi „Flex“ Rafn Guðmundsson er á svæðinu er alltaf mikil orka í loftinu. Jafnvel latasta fólkið finnur fyrir lífskraft þegar hann er nálægt enda er hann með viðkunnanlegustu, jákvæðustu og afkastamestu mannverum jarðarinnar. Hemmi frændi sóar viðtalinu auðvitað í einhverja vitleysu eins og venjulega enda hefur hún verið einn helsti burðarbiti þáttarins frá upphafi.

Monday Jan 27, 2020
40 - Hemmi fær Turbo í chat
Monday Jan 27, 2020
Monday Jan 27, 2020
Þórir „TurboDrake“ Viðarsson segir Hemmunum frá heimi rafíþrótta og starfi sínu sem formaður rafíþróttadeildar KR. Þórir hefur lengi verið viðriðinn rafíþróttabransann á Íslandi og þekkir inn á alla helstu tölvuleikina sem keppt er í. Í lok þáttarins fá hlustendur að heyra lagið bangsapabbi eftir Þórir sem er án efa besta lag sem hefur verið spilað í Hemma frænda á árinu 2020.

Monday Jan 20, 2020
39 - Hemmi fær Rakel í sögur
Monday Jan 20, 2020
Monday Jan 20, 2020
Ólátabelgurinn Rakel Ólöf Andrésdóttir kemur til Hemma frænda og segir sögur úr æsku sinni sem líkjast frekar skáldsögubútum eftir Astrid Lindgren en raunverulegu lífi. Smáuglýsingarnar eru komnar aftur eftir fjölmargar eftirspurnir og þátturinn byrjar á þvaðri hjá Bjarna og Einari um lasertag og hvor þeirra ætti að vera krýndur skyndihjálparmaður ársins.

Monday Jan 13, 2020
38 - Hemmi fær Ellen í heimsókn
Monday Jan 13, 2020
Monday Jan 13, 2020
Loksins loksins! Ellen Austmann, aðdáandi og auglýsandi Hemma frænda númer eitt, er mætt til að ræða mikilvæg málefni líðandi stundar og gleðjast með Hemmunum á nýju ári. Ekki missa af þessum. Eða þúrst, gerðu bara það sem þú vilt en það væri frábært ef þú myndir hlusta á þennan. Takk.

Monday Jan 06, 2020
37 - Hemmi fær köttinn í kaffi
Monday Jan 06, 2020
Monday Jan 06, 2020
Flugvirkinn og fréttahaukurinn Guðmundur Hallur „kötturinn“ Hallsson kemur í nýjárskaffi til Hemma frænda. Deiglan, flugvirkjun, trommusláttur og margt fleira er til umræðu í þættinum.

Monday Dec 30, 2019
36 - Hemmi áramótar Magga
Monday Dec 30, 2019
Monday Dec 30, 2019
Magnús Bjarni Gröndal er gestur í áramótaþætti Hemma frænda 2019-2020. Hann er með sólóverkefnið Mighty Bear og er einnig söngvari/gítarleikari post-metal bandsins We Made God. Maggi er talinn af mörgum vera hressasti gestur Hemma frænda ársins 2019.

Monday Dec 23, 2019
35 - Hemmi fær Gunna í jólapeysu
Monday Dec 23, 2019
Monday Dec 23, 2019
Gunnar Þór Böðvarsson er gestur í jólaþætti Hemma frænda. Hann segir okkur frá íkornum, Kínverjum og tölvuleikjanámi í Noregi. Óstaðfestar heimildir um Jesú Krist koma fram í þættinum sem eru að öllum líkindum fleipur og málræpa.

Monday Dec 16, 2019
34 - Hemmi fær Tönyu í jólaöl
Monday Dec 16, 2019
Monday Dec 16, 2019
Tanya Lind Pollock ræðir við Hemma frænda um seiðlist, tónlist, jólin, páskana og líf sitt. Mosi sonur hennar og Gunnar Ragnar Sveinbjörnsson kærasti fá að segja nokkur orð líka.

Monday Dec 09, 2019
33 - Hemmi fær Egil í heimsókn
Monday Dec 09, 2019
Monday Dec 09, 2019
Egill Karel Logason er gestur Hemma frænda að þessu sinni. Hann er einn af fáum aðdáendum þáttarins sem fær að koma og sjá undir huluna hjá Hemma frænda og spyrja þáttastjórnendurna spjörunum úr en Bjarni fer einmitt úr buxunum í þættinum.

Monday Dec 02, 2019
32 - Hemmi fær Munda í te
Monday Dec 02, 2019
Monday Dec 02, 2019
Guðmundur „Mundi“ Hauksson virðir neysluhyggjuna að vettugi. Hann gaf allar eigur sínar og ferðaðist erlendis til að finna sjálfan sig. Við fáum að heyra sögu Munda og spjöllum um hugleiðslu, jóga og sjökrur.